Öskudagsráðstefna um fagmennsku og virðingu kennara

Skóli og frístund

""

Hátt í fimm hundruð kennarar í Reykjavík hafa skráð sig á ráðstefnu á öskudag 18. febrúar, en yfirskrift hennar er Til móts við framtíðina – um fagmennsku og virðingu kennarastarfsins.

Aðalfyrirlesarar eru dr. Dr. Toby Salt, sem kallar erindi sitt The Teaching Profession – Leading the Future, og Anna Kristín, en yfirskrift erindis hennar er Þetta er á valdi kennarans; staðreynd eða goðsögn? 

Síðari hluti ráðstefnunnar er tileinkaður umræðum um fagmennsku og virðingu kennarastarfsins. Starfshópur mun vinna úr niðurstöðum.

Fjölmargar rannsóknir sýna að traust og virðing í skólastarfi og þar með gagnvart störfum kennarans er ein meginforsenda góðs árangurs hjá nemendum. Vísbendingar eru hins vegar um að kennarar upplifi ekki næga virðingu fyrir starfi sínu, sbr. niðurstöður Talis 2009 þar sem aðeins um 40% kennara töldu að borin væri virðing fyrir starfi þeirra í sveitarfélaginu sem þeir störfuðu í.

Ráðstefnan á öskudag er haldin á Hilton Nordica hóteli við Suðurlandsbraut og hefst kl. 13:00.  Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar stendur að ráðstefnunni í samstarfi við Kennarafélag Reykjavíkur og  Félag skólastjórnenda í Reykjavík. 

Ráðstefnustjóri er Sigríður Heiða Bragadóttir skólastjóri Laugarnesskóla.

Sjá ítarefni um ráðstefnuna og virðingu og fagmennsku kennara.