Opinn fundur um menningarstefnu Reykjavíkurborgar og styrkir til menningarmála 2015 verða kynntir í Borgarbókasafni - menningarhúsi í Spöng, mánudaginn 19. janúar kl. 15.
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar heldur opinn fund um nýja menningarstefnu borgarinnar mánudaginn 19. janúar kl. 15 í Borgarbókasafninu, menningarhúsi sem í desember var opnað í Spönginni 41 í Grafarvogi.
Í kjölfarið greinir formaður ráðsins Elsa Hrafnhildur Yeoman frá styrkjum til fjölbreytts menningarstarfs í borginni, Borgarhátíðasjóði og samstarfssamningum til lengri tima. Þá verður einnig útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2015 sem mun koma fram.
Menningarstefna Reykjavíkurborgar, „Menning er mannréttindi“, gildir frá árinu 2014 til 2020. Fjölbreytt aðgerðaáætlun fylgir stefnunni og verður hún uppfærð árlega sem er nýmæli. Allir eru velkomnir.