Málþing um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis verður haldið í Ráðhúsinu í Reykjavík nú á föstudag og laugardag, þann 13. og 14. nóvember. Boðið verður upp á þrjár málstofur með yfir tuttugu fyrirlesurum. Samhliða málstofum verður sýning um sama efni í Ráðhúsinu og er hún eins og málstofur öllum opnar.
Á fyrstu málstofunni á föstudagsmorgun verður kastljósinu beint að skipulagi og framkvæmdum við íbúðarhúsnæði í Reykjavík. Efir hádegi á föstudag verður fjallað um nútíma borgarþróun og breyttar óskir og þarfir íbúa. Á laugardag hefst málstofa kl. 10.30 þar sem rætt verður um vandamál og hugsanlegar lausnir í húsnæðismálum m.a. í efnahagslegu tilliti og möguleika ungs fólks til að fá þak yfir höfuðið.
Þessa tvo daga verður Ráðhúsið suðupottur upplýsingamiðlunar og umræðu um stöðu og horfur í húsnæðismálum. Þátttakendur í sýningu verða viðstaddir á föstudag og laugardag, en sýningin mun einnig hanga uppi á sunnudag.
Dagskrá málstofa
Hvað er að gerast? – Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
- föstudaginn 13. nóvember 2015 kl. 8.30 – 12.00
Kynnt verður skipulag og framkvæmdir á fjölmörgum svæðum í Reykjavík.
Kynnt verður skipulag og framkvæmdir á fjölmörgum svæðum í Reykjavík.
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Ávarp og opnun sýningar; Yfirlit yfir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
- Einar I, Halldórsson, skrifstofa eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg: Vesturbugt / Nýju Reykjavíkurhúsin
- Páll Gunnlaugsson, arkitekt, ASK: Kirkjusandur
- Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt, Tröð: Vogabyggð
- Ingvi Jónasson, Klasi ehf.: Elliðaárvogur – Hugmyndir um þróunarfélag
- Brynjar Harðarson, Valsmenn hf.: Hlíðarendi
- Guðrún Ingvarsdóttir, Búseti: Smiðjuholt; Ísleifsgata; Laugarnesvegur; Keilugrandi
- Halldór Eiríksson, arkitekt: Barónsreitur – íbúðir í miðbænum, leigumarkaður
- Helgi S. Gunnarsson, Reginn: Austurbakki / Hörpureitur
- Guðrún Björnsdóttir, Félagsstofnun stúdenta: Mjölnisholt
- Guðmundur Kristján Jónsson, Borgarbragur: Brautarholt
Í lok málstofu verða fyrirspurnir úr sal og umræður með þátttöku fyrirlesara. Málstofustjóri er Ólöf Örvarsdóttir.
Hádegishlé 12.00 - 13.00. Léttar veitingar eru seldar í kaffihúsi í austurenda Ráðhússins.
Hádegishlé 12.00 - 13.00. Léttar veitingar eru seldar í kaffihúsi í austurenda Ráðhússins.
Er framtíðin hér? Nýir straumar í húsnæðismálum
– föstudaginn 13. nóvember kl. 13.00 – 15.15
Fjallað verður um nútíma borgarþróun og breyttar óskir og þarfir íbúa.
Fjallað verður um nútíma borgarþróun og breyttar óskir og þarfir íbúa.
- Anna María Bogadóttir, arkitekt: Hæg breytileg átt
- Ásgeir Brynjar Torfason, rekstrarhagfræðingur: Húsnæði og fjármagn – tvær hliðar á sama peningi
- Bryndís Eva Ásmundsdóttir, kennari og meistaranemi í menningarfræði: Neysluhugvekja
- Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur: Orðið húsnæði felur í sér fyrirheit
- Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt: Að læra um þakið af þekjunni
- Jóhann Sigurðsson, arkitekt: Neytendadrifin fasteignaþróun
- Bjarki Gunnar Halldórsson, arkitekt: Framtíð úr framandi átt
Í lok málstofunnar verða fyrirspurnir úr sal og umræður með þátttöku fyrirlesara. Málstofustjóri er Anna María Bogadóttir.
Hvað er framundan? – Viðfangsefni og lausnir
– laugardaginn 14. nóvember kl. 10.30 - 13.00
Einkum verður fjallað um vandamál og hugsanlegar lausnir í húsnæðismálum m.a. í efnahagslegu tilliti og möguleika ungs fólks til að fá þak yfir höfuðið.
Einkum verður fjallað um vandamál og hugsanlegar lausnir í húsnæðismálum m.a. í efnahagslegu tilliti og möguleika ungs fólks til að fá þak yfir höfuðið.
- Dagur B. Eggertsson: Yfirlit yfir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
- Ásgeir Jónsson, Félagsvísindasvið / Hagfræðideild HÍ. Versnar ástandið áður en það batnar?
- Gylfi Arnbjörnsson, ASÍ: Brýn úrræði fyrir tekjulágar fjölskyldur
- Aron Ólafsson, formaður stúdentaráðs: Framtíðarsýn stúdenta í húsnæðismálum
- Hólmsteinn Brekkan, Samtök leigjenda á Íslandi: Er leiga valkostur?
- Friðrik Ólafsson, Samtök iðnaðarins: Veruleikinn í dag og væntingar til 2018
- Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra: Hvað næst?
Í lok málstofunnar verða fyrirspurnir úr sal og umræður með þátttöku fyrirlesara. Málstofustjóri er Halla Helgadóttir
Sjá nánar á reykjavik.is/uppbygging