Nýjar íbúðir og hugmyndir kynntar á málþingi og sýningu í Ráðhúsinu

Stjórnsýsla Umhverfi

""
Málþing um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis verður haldið í Ráðhúsinu í Reykjavík nú á föstudag og laugardag, þann 13. og 14. nóvember. Boðið verður upp á þrjár málstofur með yfir tuttugu fyrirlesurum.  Samhliða málstofum verður sýning um sama efni í Ráðhúsinu og er hún eins og málstofur öllum opnar. 
Á fyrstu málstofunni á föstudagsmorgun verður kastljósinu beint að skipulagi og framkvæmdum við íbúðarhúsnæði í Reykjavík. Efir hádegi á föstudag verður fjallað um nútíma borgarþróun og breyttar óskir og þarfir íbúa.  Á laugardag hefst málstofa kl. 10.30 þar sem rætt verður um vandamál og hugsanlegar lausnir í húsnæðismálum m.a. í efnahagslegu tilliti og möguleika ungs fólks til að fá þak yfir höfuðið.


Þessa tvo daga verður Ráðhúsið suðupottur upplýsingamiðlunar og umræðu um stöðu og horfur í húsnæðismálum. Þátttakendur í sýningu verða viðstaddir á föstudag og laugardag, en sýningin mun einnig hanga uppi á sunnudag. 

Dagskrá málstofa

Hvað er að gerast? – Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík

- föstudaginn 13. nóvember 2015 kl. 8.30 – 12.00

 

Kynnt verður skipulag og framkvæmdir á fjölmörgum svæðum í Reykjavík.

 
  • Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Ávarp og opnun sýningar; Yfirlit yfir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
  • Einar I, Halldórsson, skrifstofa eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg: Vesturbugt / Nýju Reykjavíkurhúsin
  • Páll Gunnlaugsson, arkitekt, ASK: Kirkjusandur          
  • Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt, Tröð: Vogabyggð
  • Ingvi Jónasson, Klasi ehf.: Elliðaárvogur – Hugmyndir um þróunarfélag
  • Brynjar Harðarson, Valsmenn hf.: Hlíðarendi
  • Guðrún Ingvarsdóttir, Búseti: Smiðjuholt; Ísleifsgata; Laugarnesvegur; Keilugrandi
  • Halldór Eiríksson, arkitekt: Barónsreitur – íbúðir í miðbænum, leigumarkaður
  • Helgi S. Gunnarsson, Reginn: Austurbakki / Hörpureitur
  • Guðrún Björnsdóttir, Félagsstofnun stúdenta: Mjölnisholt
  • Guðmundur Kristján Jónsson, Borgarbragur: Brautarholt
Í lok málstofu verða fyrirspurnir úr sal og umræður með þátttöku fyrirlesara. Málstofustjóri er Ólöf Örvarsdóttir.



Hádegishlé 12.00 - 13.00. Léttar veitingar eru seldar í kaffihúsi í austurenda Ráðhússins. 
 

Er framtíðin hér? Nýir straumar í húsnæðismálum

– föstudaginn 13. nóvember kl. 13.00 – 15.15



Fjallað verður um nútíma borgarþróun og breyttar óskir og þarfir íbúa.

 
  • Anna María Bogadóttir, arkitekt: Hæg breytileg átt
  • Ásgeir Brynjar Torfason, rekstrarhagfræðingur: Húsnæði og fjármagn – tvær hliðar á sama peningi
  • Bryndís Eva Ásmundsdóttir, kennari og meistaranemi í menningarfræði: Neysluhugvekja
  • Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur: Orðið húsnæði felur í sér fyrirheit
  • Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt: Að læra um þakið af þekjunni
  • Jóhann Sigurðsson, arkitekt: Neytendadrifin fasteignaþróun
  • Bjarki Gunnar Halldórsson, arkitekt: Framtíð úr framandi átt

Í lok málstofunnar verða fyrirspurnir úr sal og umræður með þátttöku fyrirlesara. Málstofustjóri er Anna María Bogadóttir.

 

Hvað er framundan? – Viðfangsefni og lausnir

– laugardaginn 14. nóvember kl. 10.30 - 13.00  



Einkum verður fjallað um vandamál og hugsanlegar lausnir í húsnæðismálum m.a. í efnahagslegu tilliti og möguleika ungs fólks til að fá þak yfir höfuðið.

 
  • Dagur B. Eggertsson: Yfirlit yfir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
  • Ásgeir Jónsson, Félagsvísindasvið / Hagfræðideild HÍ. Versnar ástandið áður en það batnar?
  • Gylfi Arnbjörnsson, ASÍ: Brýn úrræði fyrir tekjulágar fjölskyldur
  • Aron Ólafsson, formaður stúdentaráðs: Framtíðarsýn stúdenta í húsnæðismálum
  • Hólmsteinn Brekkan, Samtök leigjenda á Íslandi: Er leiga valkostur?
  • Friðrik Ólafsson, Samtök iðnaðarins: Veruleikinn í dag og væntingar til 2018
  • Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra: Hvað næst?
Í lok málstofunnar verða fyrirspurnir úr sal og umræður með þátttöku fyrirlesara. Málstofustjóri er Halla Helgadóttir