Ný upplýsingastefna Reykjavíkurborgar var samþykkt á fundi borgarráðs 9. júlí. Hún var unnin af stýrihópi á vegum stjórnkerfis- og lýðræðisráðs og tekur við af eldri stefnu frá árinu 2000.
Upplýsingastefnan, sem varð til í víðtæku samráðsferli, byggist á þeim grunni að vönduð meðferð og miðlun upplýsinga sé lykilþáttur í starfsemi borgarinnar. Henni er ætlað að gera aðgang að upplýsingum og þjónustu við borgarbúa greiðari, skilvirkari og markvissari. Stefnan nær til allra fagsviða borgarinnar, ráða og nefnda, stofnana, starfseininga, kjörinna fulltrúa, fyrirtækja og byggðasamlaga í meirihlutaeigu borgarinnar.
Upplýsingastefnan byggist á sex meginmarkmiðum; traustri upplýsingamiðlun, frumkvæði, skilvirkni, notendamiðuðu aðgengi að upplýsingum, virkum samskiptum og opnum gögnum.
Til að tryggja að meginmarkmið stefnunnar nái fram að ganga verður gerð aðgerðaáætlun til tveggja ára í senn. Stjórnkerfis- og lýðræðisráð ber ábyrgð á því að meta árangur þeirrar
áætlunar.
Í bókun borgarráðs við samþykkt upplýsingastefnunnar segir m.a.
„Gott flæði upplýsinga innan stjórnsýslunnar styður við skilvirka þjónustu og málsmeðferð, gott flæði upplýsinga úr stjórnsýslunni tryggir gagnsæi og gott flæði upplýsinga til stjórnsýslunnar er undirstaða vandaðrar ákvarðanatöku og samráðs.“
Borgarráðsfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina lagði einnig fram bókun þar sem ítrekað var mikilvægi forgangsröðunar fjármuna og að sjónarmið ráðdeildar og hagsýni yrðu höfð að leiðarljósi við innleiðingu nýrrar upplýsingastefnu. Í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks var minnt á að eitt sé að samþykkja metnaðarfullar tillögur í upplýsingamálum en annað að framfylgja þeim – og í því samhengi nefndar tillögur þeirra á undanförnum árum sem miða að því að auka upplýsingagjöf til almennings um ráðstöfun almannafjár en ekki hafa komist til framkvæmda.
Í samráðsferli um upplýsingastefnuna var m.a. efnt til opins borgarafundar og óskað eftir athugasemdum frá almenningi. Brugðist var við athugasemdum sem bárust, stýrihópi um stefnuna, hvort heldur frá borgarbúum eða stjórnendum og öðrum starfsmönnum borgarinnar.