Ný hallasláttuvél hefur verið tekin í notkun hjá Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar á Stórhöfða. Vélin hentar einkar vel við slátt á hljóðmönum.
Vélin var tekin í notkun um miðjan maí og að sögn Sigurðar I. Geirssonar yfirverkstjóra á Þjónustuðmiðstöð umhverfis- og skipulagssviðs við Stórhöfða hefur hún reynst afar vel. Vélin er á beltum og er hægt að slá gras í töluverðum halla og er einn starfsmaður sem fjarstýrir henni. Sigurður segir að áður hafi þurft 10 til 15 manns með sláttuorf til að slá manir og tók ein meðalstór mön um einn klukkutíma, stærri manir tóku mun lengri tíma. Með nýju hallasláttuvélinni tekur það einn mann um hálftíma að slá alla mönina og er því mikill sparnaður bæði hvað varðar tíma og mannafla.
Sigurður segir að þó svo að nýja vélin sé mikil hagræðing þá þurfi alltaf mannskap á sláttuorfin til þess að slá kringum ljósastaura og gras sem vélin nær ekki til auk þess þurfi að hirða grasið að loknum slætti. Sigurður segir að almennt séu menn mjög ánægðir með þessa viðbót við vélakost þjónustumiðstöðvarinnar.
Grassláttur hefur staðið yfir undanfarið og er búið að slá manir með nýju vélinni vítt og breitt um borgina. Þeir sem vilja kynna sér málið nánar geta skoðað vefsíðuna um grasslátt á heimasíðu borgarinnar.