Nemendur í Réttó styrkja Vin

Skóli og frístund

""

Nemendur í Réttarholtsskóla afhentu á dögunum afrakstur af árlegu söfnunarátaki til að styrkja gott málefni.

Nemendur söfnuðu rúmlega hálfri milljón króna með því að selja bókamerki sem jafnframt voru happadrættismiðar. Peningana afhentu þeir VIN, athvarfi sem Rauði krossinn rekur fyrir fólk með geðraskanir. Það voru glaðir fulltrúar nemenda sem afhenti þetta rausnalega framlag vitandi að það mun koma í góðar þarfir.