Morgunverðarfundur um deilihagkerfið

Stjórnsýsla Atvinnumál

""

Stafar ógn af deilihagkerfinu eða býður það upp á ný tækifæri? Þetta er yfirskrift morgunverðarfundar um deilihagkerfið sem Reykjavik Economics, Expectus og Reykjavíkurborg standa fyrir í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun, föstudaginn 27. febrúar. Fundurinn hefst klukkan 8.30 með erindi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Allir eru velkomnir.

Deilihagkerfið vex mjög ört og er í örri þróun í heiminum í dag. Hugtakið er notað yfir alls kyns viðskipti og þjónustu sem í boði er í gegnum netið. Flestir þekkja hugmyndina um reiðhjól sem hægt er að nota gegn ákveðnu gjaldi og skila síðan af sér á ákveðnum stöðum. Verið er að þróa sjálfkeyrandi bíla sem allir gætu notað gegn gjaldi og pantað með aðstoð smáforrits. Fólk skiptist á húsnæði á milli landa í fríum í gegnum Internetið, eða býður húsnæði til leigu á vefsíðum.  Víða er hægt að kaupa alls kyns hraðþjónustu í gegnum smáforrit. Allt er þetta hluti af deilihagkerfinu.

Í fyrramálið standa Reykjavíkurborg, Reykjavik Economics og Expectus fyrir spennandi morgunverðarfundi um deilihagkerfið. Stafar í raun ógn af deilihagkerfinu eða býður það upp á ný og óþekkt tækifæri. Leitast verður við að svara þessum spurningum.

Dagskrá fundarins 

  • 8:00 – 8:30 Morgunkaffi.
  • 8:30 – 8:40 Deilihagkerfið Reykjavík  -  Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
  • 8:40 – 9:00 Hvað er deilihagkerfið? Tækifæri og ógnanir  -  Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
  • 9:00 – 9:15 Internet of things. Tæknibylting sem eykur lífsgæði og hagkvæmni í samfélaginu  -  Þorvarður Sveinsson, forstöðumaður stefnumótunar hjá Vodafone.
  • 9:15 – 9:30 Sjónarhorn skattyfirvalda  -  Sigurður Jensson, sviðstjóri eftirlitssviðs RSK.
  • 9:30 – 9:40 „Lókal glóbal búseta“ -  Dagný Bjarnadóttir, Dagný Land Design.
  • 9:40 – 10:30 Pallborð um deilihagkerfið. Stjórn pallborðsins og samantekt, Magnús Árni Skúlason, framkvæmdastjóri Reykjavík Economics ehf.

Fundarstjóri er Magnús Árni Skjöld Magnússon, dósent við Háskólann á Bifröst.

Þátttakendur í pallborði:

Helga Árnadóttir, SAF

Þengill Björnsson, Caritas.is

Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi

Birgir Þór Halldórsson, Samferda.net

Allir eru velkomnir. Skráning í gegnum netfangið deilihagkerfid@reykjavik.is.