Stafar ógn af deilihagkerfinu eða býður það upp á ný tækifæri? Þetta er yfirskrift morgunverðarfundar um deilihagkerfið sem Reykjavik Economics, Expectus og Reykjavíkurborg standa fyrir í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun, föstudaginn 27. febrúar. Fundurinn hefst klukkan 8.30 með erindi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Allir eru velkomnir.
Deilihagkerfið vex mjög ört og er í örri þróun í heiminum í dag. Hugtakið er notað yfir alls kyns viðskipti og þjónustu sem í boði er í gegnum netið. Flestir þekkja hugmyndina um reiðhjól sem hægt er að nota gegn ákveðnu gjaldi og skila síðan af sér á ákveðnum stöðum. Verið er að þróa sjálfkeyrandi bíla sem allir gætu notað gegn gjaldi og pantað með aðstoð smáforrits. Fólk skiptist á húsnæði á milli landa í fríum í gegnum Internetið, eða býður húsnæði til leigu á vefsíðum. Víða er hægt að kaupa alls kyns hraðþjónustu í gegnum smáforrit. Allt er þetta hluti af deilihagkerfinu.
Í fyrramálið standa Reykjavíkurborg, Reykjavik Economics og Expectus fyrir spennandi morgunverðarfundi um deilihagkerfið. Stafar í raun ógn af deilihagkerfinu eða býður það upp á ný og óþekkt tækifæri. Leitast verður við að svara þessum spurningum.
Dagskrá fundarins
- 8:00 – 8:30 Morgunkaffi.
- 8:30 – 8:40 Deilihagkerfið Reykjavík - Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
- 8:40 – 9:00 Hvað er deilihagkerfið? Tækifæri og ógnanir - Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
- 9:00 – 9:15 Internet of things. Tæknibylting sem eykur lífsgæði og hagkvæmni í samfélaginu - Þorvarður Sveinsson, forstöðumaður stefnumótunar hjá Vodafone.
- 9:15 – 9:30 Sjónarhorn skattyfirvalda - Sigurður Jensson, sviðstjóri eftirlitssviðs RSK.
- 9:30 – 9:40 „Lókal glóbal búseta“ - Dagný Bjarnadóttir, Dagný Land Design.
- 9:40 – 10:30 Pallborð um deilihagkerfið. Stjórn pallborðsins og samantekt, Magnús Árni Skúlason, framkvæmdastjóri Reykjavík Economics ehf.
Fundarstjóri er Magnús Árni Skjöld Magnússon, dósent við Háskólann á Bifröst.
Þátttakendur í pallborði:
Helga Árnadóttir, SAF
Þengill Björnsson, Caritas.is
Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi
Birgir Þór Halldórsson, Samferda.net
Allir eru velkomnir. Skráning í gegnum netfangið deilihagkerfid@reykjavik.is.