Mikið fjör í Vesturbænum í vetrarfríinu

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Margt var í boði í vetrarfríi grunnskólanna í Vesturbænum síðustu daga og ekki var að sjá á öðru en krakkarnir og foreldrar þeirra væru að taka virkan þátt. Þegar litið var við í sundlaug Vesturbæjar í gær var mikið um að vera, t.d. var verið að sýna bíómynd, hljómsveit spilaði fyrir gesti í anddyri sundlaugarinnar, þá var samsöngur og boðið var upp á kakó og ýmislegt fleira. Það var Frístundamiðstöðin Frostaskjól sem stóð fyrir þessum viðburði eins og öðrum tengdum vetrarfríi grunnskólanna í Vesturbæ.