Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar í Breiðholti 2015

Velferð Skóli og frístund

""

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 12. mars kl. 16.00. Hátíðin er árviss og skemmtilegur viðburður þar sem nemendur í sjöunda bekk, sem valdir hafa verið úr grunnskólum Breiðholts, lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og aðrir ungir listamenn. Áætlað er að athöfnin standi í um tvær klukkustundir með hléi og gestir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir.