Í félagsmiðstöðvum fyrir fullorðna sem eru staðsettar víðs vegar um borgina koma þátttakendur sjálfir að því að móta fjölbreytta dagskrá sem stuðlar að virkni og aukinni samfélagsþátttöku borgaranna. Nú á haustdögum setja félagsmiðstöðvarnar fram haustdagskrá og er fólk hvatt til að kynna sér það sem í boði er og skrá sig í hópa og á hin ýmsu námskeið.
Starfsfólk félagsmiðstöðvanna leggur sig fram um að virkja frumkvæði, fá fram vilja þeirra sem sækja félagsstarfið og aukin áhersla er á virka þátttöku notenda. Mikil gróska hefur verið í hópastarfi og sjálfboðastarfi í félagsmiðstöðvunum. Nýja haustdagskráin er tilbúin fyrir Félagsmiðstöðina í Hæðargarði. Þar eru fjölbreytt námskeið í boði og nú er bara að skoða úrvalið og mæta á staðinn.