Jón Pétur Zimsen ráðinn skólastjóri við Réttarholtsskóla

Skóli og frístund

""

Gengið var frá ráðningu skólastjóra í Réttarholtsskóla á fundi skóla- og frístundaráðs í dag. 

Jón Pétur Ziemsen var ráðinn skólastjóri en hann hefur starfað við Réttarholtsskóla frá 1998 og sem aðstoðarskólastjóri við skólann síðastliðin 8 ár.

Sautján umsækjendur voru um stöðuna.