Jólaskógurinn á Hólmsheiði opnar um helgina

Umhverfi Skóli og frístund

""
Það er orðin sterk hefð í mörgum fjölskyldum að koma í Jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré. Í ár verður Jólaskógurinn á Hólmsheiði helgarnar 5. og 6. desember, 12.-13.desember og 19.-20. desember, kl. 11-16.
Alla daga verður líf og fjör, jólasveinarnir verða á staðnum og það verður logandi varðeldur. Það er boðið upp á heitt kakó og piparkökur og jólalögin sungin.Það er sannkölluð jólastemning í skóginum!
 
Íslensk jólatré eru vistvæn. Þau eru ræktuð án eiturefna og eru ekki flutt á milli landa. Í staðinn fyrir hvert tré sem höggvið er gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur að minnsta kosti þrjátíu tré.
 
Í ár bjóðum við upp á nýjung á jólatréssölunni, en þar verður nú að finna EINSTÖK JÓLATRÉ. Hjartahreinum gestum býðst þar að kaupa jólatrén sem enginn vildi. Einstöku jólatrén eru rétt eins og kaupendurnir alls konar í laginu: sum eru lítil og breið, önnur sveigjast til hliðar eða eru jafnvel vaxin eins og litlir runnar. Eins og öll tré félagsins eru þau handvalin fegurðar sinnar vegna – en eru hins vegar langt frá því að líta út eins og hin trén á sölunni, sem hafa öllu hefðbundnari fegurð til að bera. Einstöku trén eru ein sinnar tegundar og hafa sterkan karakter – kannski eins og fjölskyldan sem endar með það heima í stofu á aðfangadag.
 
Allar tekjur af jólatréssölunni renna óskiptar til uppbyggingar og reksturs útivistarsvæðisins í Heiðmörk. Þetta er aðal tekjuöflun Skógræktarfélags Reykjavíkur til að geta rekið það svæði.
 
Félagsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur fá 15% í afslátt.