Síðasta kennsludagur fyrir jól er í grunnskólum borgarinnar í dag og fara þá ríflega 14.000 nemendur í kærkomið frí eftir annasama haustönn.
Margt hefur verið brallað í skólunum síðustu vikur fyrir jól, börnin hafa skreytt skólana sína, þreytt próf og skilað verkefnum, bakað piparkökur og farið á jólaskemmtanir. Þá hafa þau farið í jólatrésleiðangra og gestir úr fjöllum hafa víða litið við; Grýla, jólasveinar og jólameyjar.
Fyrsti skóladagur á nýju ári verður í flestum skólum þriðjudagurinn 5. janúar.
Gleðilegt jólafrí krakkar!