Jólafrí í grunnskólum

Skóli og frístund

""
Síðasta kennsludagur fyrir jól er í grunnskólum borgarinnar í dag og fara þá ríflega 14.000 nemendur í kærkomið frí eftir annasama haustönn. 
Margt hefur verið brallað í skólunum síðustu vikur fyrir jól, börnin hafa skreytt skólana sína, þreytt próf og skilað verkefnum, bakað piparkökur og farið á jólaskemmtanir.  Þá hafa þau farið í jólatrésleiðangra og gestir úr fjöllum hafa víða litið við; Grýla, jólasveinar og jólameyjar.
 
Fyrsti skóladagur á nýju ári verður í flestum skólum þriðjudagurinn  5. janúar. 
 
Gleðilegt jólafrí krakkar!