Jóladagskrá í Árbæjarsafni

Mannlíf Menning og listir

""

Jóladagskrá Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hefur hlotið fastan sess í menningarlífi borgarbúa á aðventunni. Ungir sem aldnir geta rölt á milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta, börn og fullorðnir fá að föndra og syngja saman jólalög. Þá gefst gestum tækifæri að taka þátt í jólalegum ratleik um safnsvæðið. Að vanda býður Dillonshús upp á ljúffengar veitingar, heitt súkkulaði og jólalegt meðlæti.

 Jólaundirbúningur og handverk í húsum Árbæjarsafns


Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti verður spunnið og prjónað. Þar verður  jólatré einnig vafið lyngi. Í Kornhúsinu  fá börn og fullorðnir að föndra, búa til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Hábæ verður hangikjöt í potti og gestum boðið að bragða á nýsoðnu keti. Í Nýlendu verður hægt að fylgjast með tréútskurði og Miðhúsum verður hægt að fá prentaða jólakveðju. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullt skrið og skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti er sýnt hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í gamla daga. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og krambúðin verður með kramarhús, konfekt og ýmsan jólavarning til sölu.
 
Sýningar

Í Lækjargötu 4 er sýningin Neyzlan – Reykjavík á 20. öld sem fjallar um hvernig samfélagið á Íslandi þróaðist frá sjálfsþurftarbúskap til tæknivædds markaðsbúskapar á nokkrum áratugum. Þar er einnig að finna litla sýningu sem nefnist Aðfangadagskvöld 1959. Í Kornhúsinu má sjá sýninguna Hjáverkin sem fjallar um vinnuframlag kvenna inni á heimilum á árunum 1900-1970. Í Landakoti er hin skemmtilega sýning Komdu að leika!
 
Aðgangseyrir er 1400 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn 18 ára og yngri, ellilífeyrisþega (70+) og öryrkja.
Menningarkortið veitir ókeypis aðgang að safninu.
 
Jóladagskráin verður líka í boði 20. desember en þá munu aðrir listamenn troða upp.