Jaðarlist

Velferð Menning og listir

""

Sýningin Jaðarlist opnaði í Tjarnarsal Ráðhússins í dag og verður opin til og með 25. maí. Þar sýna óhefðbundnir listamenn, sem koma úr ýmsum áttum. 

Jaðarlist eða „outsider art“ er liststefna sem skapar vettvang fyrir þá sem tilheyra ekki hinu hefðbundna listsamfélagi. Við opnunina var margt um manninn og mikil stemning.  Enginn ætti að láta þessa sýningu fram hjá sér fara en þar sameinast ólíkir einstaklingar í tjáningar- og sköpunargleði sinni. Listamennirnir sungu og spiluðu auk þess að flytja ljóð við opnunina en tæplega 20 listamenn taka þátt í sýningunni.

Meðal verka eru málverk, handverk og ljóð. Hér er dæmi um eitt þeirra en það er eftir Bylgju Scheving:

Enn á ný á 33A

en hvað er að fást um það

lögð var hér inn bágborin

tekið of mykið af víni inn

illa fer það með líkama og sál

já heilinn verður eins og kál.

get ekki hugsað hugsun til enda

fólk fer svo á mig að benda.

fylliraftur þarna fer

enga ábyrgð á sér ber

illt umtal er ekki gott.

Leitt því ég var einu sinni flott.

góða hluti gerði vel

var með gott hugarþel.

var með heill annara í huga

ég lét mig ekkert buga

til góðs lífs ég vil aftur snúa

að gefa, það, ég verð að trúa.

aldrei alkahól aftur að snerta

því það mun líf mitt áfram sverta.