Sýningin Jaðarlist opnaði í Tjarnarsal Ráðhússins í dag og verður opin til og með 25. maí. Þar sýna óhefðbundnir listamenn, sem koma úr ýmsum áttum.
Jaðarlist eða „outsider art“ er liststefna sem skapar vettvang fyrir þá sem tilheyra ekki hinu hefðbundna listsamfélagi. Við opnunina var margt um manninn og mikil stemning. Enginn ætti að láta þessa sýningu fram hjá sér fara en þar sameinast ólíkir einstaklingar í tjáningar- og sköpunargleði sinni. Listamennirnir sungu og spiluðu auk þess að flytja ljóð við opnunina en tæplega 20 listamenn taka þátt í sýningunni.
Meðal verka eru málverk, handverk og ljóð. Hér er dæmi um eitt þeirra en það er eftir Bylgju Scheving:
Enn á ný á 33A
en hvað er að fást um það
lögð var hér inn bágborin
tekið of mykið af víni inn
illa fer það með líkama og sál
já heilinn verður eins og kál.
get ekki hugsað hugsun til enda
fólk fer svo á mig að benda.
fylliraftur þarna fer
enga ábyrgð á sér ber
illt umtal er ekki gott.
Leitt því ég var einu sinni flott.
góða hluti gerði vel
var með gott hugarþel.
var með heill annara í huga
ég lét mig ekkert buga
til góðs lífs ég vil aftur snúa
að gefa, það, ég verð að trúa.
aldrei alkahól aftur að snerta
því það mun líf mitt áfram sverta.