Íslensku barnabókaverðlaunin afhent í Hagaskóla

Skóli og frístund

""

Allir nemendur í 9. bekk Hagaskóla skólans voru viðstaddir þegar Íslensku barnabókaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á sal þriðjudaginn 13. október. Nemendur áttu fulltrúa í dómnefnd sem valdi verðlaunabókina eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur.   

Verðlaunin hlaut Ragnheiður fyrir bók sína Skuggasaga- Arftakinn. Að mati dómnefndar er þetta metnaðarfull og spennandi saga sem jafnast á við bestu furðusögur sem skrifaðar hafa verið á íslensku.

Ómar Örn Magnússon, skólastjóri, bauð gesti velkomna eftir fyrsta tónlistaratriðið og fagnaði því að skrifaðar væru spennandi barna- og unglingabækur. Sigþrúður Gunnarsdóttir frá JPV forlaginu steig þvínæst á svið og  tilkynnti að Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlyti verðlaunin 2015.

Tveir nemendur úr 9. bekk Hagaskóla sátu í dómnefnd Íslensku barnabókaverðlaunanna en það voru Matthías Löve í 9.SS og Hrafnhildur Einarsdóttir í 9. ÁR. Þau lásu brot úr sögunni við athöfnina. Þá sáu nemendur úr 9. bekk um tónlistarflutning en Maja Snorradóttir og Sigrún Valgeirsdóttir í 9.ÞB spiluðu á þverflautu og Steinunn Lárusdóttir í 9.SS söng við undirleik Lárusar Grímssonar. Ívar Ólafsson, bókasafnsfræðingur skólans, tók einnig við bókagjöf við þetta tilefni.   

Höfundurinn Ragnheiður Eyjólfsdóttir er arkítekt að mennt. Arftakinn er hennar fyrsta bók,  en innblásturinn sækir hún í norrænar sögur og evrópskar sagnir og ævintýri.  Þess má geta að Ragnheiður er fyrrum nemandi í Hagaskóla og er henni óskað innilega til hamingju með verðlaunin.