Kaupás hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað heslihnetukjarna merkta First Price, þar sem að mygla fannst í vörunni.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: First Price.
Vöruheiti: Heslihnetukjarnar.
Strikanúmer: 7311041073483
Best fyrir: 08.09.2015
Nettóþyngd: 200 g.
Framleiðandi: CALDIC SWEDEN AB
Framleiðsluland: Svíþjóð
Dreifingaraðili: Kaupás, Skarfagörðum 2.
Dreifing: Nóatún, Austurveri og í verslanir Krónunnar um land allt.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna í framangreindum verslunum er bent á að skila henni í viðkomandi verslun. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björk Geirsdóttir deildarstjóri hjá Kaupási í síma 559 3000.