Innköllun á Bónus sætu sinnepi

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Vogabær ehf. hefur ákveðið að innkalla frá neytendum Bónus sætt franskt sinnep sem fyrirtækið framleiðir fyrir Bónus þar sem varan inniheldur sellerí en ekki er upplýst um það í lista yfir innihaldsefni vörunnar.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Bónus.

Vöruheiti:  Sinnep – sætt - franskt.

Strikanúmer:  5690575210048.

Nettómagn:  460 g.

Framleiðandi:  Vogabær ehf. fyrir Bónus, Skútuvogi 13, 104 Reykjavík.

Framleiðsluland:  Ísland.

Dreifing:  Verslanir Bónus um land allt.

Sellerí er á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- eða óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.  Tekið skal fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir selleríi. 

Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol fyrir selleríi eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til Vogabæjar ehf. gegn endurgreiðslu.