Hvaða máli skiptir náttúran í borgarumhverfi?

Skipulagsmál Umhverfi

""

Náttúran í borginni og borgin í náttúrunni verða til umfjöllunar í fundaröðinni Heimkynni okkar, borgin sem umhverfis- og skipulagssvið stendur fyrir með Hjálmari Sveinssyni formanni umhverfis- og skipulagsráðs um þróun og mótun Reykjavíkurborgar. Fundurinn er þriðjudaginn 10. mars 2015 klukkan 20.00 á Kjarvalsstöðum.

Spurt verður á fundinum: Hvaða máli skiptir náttúran í borgarumhverfi? Er Reykjavík borg náttúrunnar? Eru opnu svæðin í Reykjavík of víðfeðm, of mörg eða of fá? Getur náttúruupplifun átt sér stað í húsagötu? Getur borg þrifist án náttúru? Hvernig náttúru viljum við í borginni? Þarf að vernda náttúru í borg?



Gestir fundarins ásamt Hjálmari Sveinssyni eru Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt, Sigrún Birgisdóttir arkitekt og deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar  LHÍ og Snorri Sigurðsson doktor í líffræði hjá skrifstofu náttúru og garða hjá Reykjavíkurborg.

Áður hefur verið fjallað um spurningarnar:  Hver á borgina? Er Reykjavík heilsusamleg borg? Á að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu? Hver eru áhrif borgarskipulags á hamingju? En að þessu sinni er spurt hvaða máli náttúran skipi í borgarskipulaginu en tilefnið er að Reykjavíkurborg fékk náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2014.

Allir eru velkomnir – kaffi á könnunni.

Tenglar:

Fyrsti fundurinn hét Hver á borgina? Hér eru upplýsingar um hann. 

Annar fundurinn fjallaði um hvort borgin væri heilsusamlegur staður. Hér er upptaka af honum.

Þriðji fundurinn var með yfirskriftina: Á að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Upptaka

Fjórði fundurinn fjallaði um hvort samband væri á milli borgarumhverfis  og hamingju. Von er á upptöku.