Hátíðleg dagskrá við Oslóartréð í dag

Umhverfi Mannlíf

""
Kveikt verður á stóra jólatrénu sem Oslóarborg gefur Reykvíkingum við hátíðlega athöfn á Austurvelli í dag, fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóvember. Tilvalið er einnig að líta við í Ráðhúsi Reykjavíkur og skoða jólaskóginn í Tjarnarsal.
Dagskráin er sem hér segir:
 
15:30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög við Oslóartréð. Stjórnandi Lárus Halldór Grímsson.
 
16:00 Gerður G. Bjarklind býður fólk velkomið. Dagskráin verður túlkuð á táknmáli

 
16:03 Söngvararnir, þau Ragnheiður Gröndal og Stefán Hilmarsson stíga á svið og syngja jólalög ásamt hljómsveit.

 
16:10 Khamshajiny Gunaratnam (Khamzy) varaborgarstjóri Oslóar segir nokkur orð og afhendir Reykvíkingum tréð að gjöf. Borgarstjóri, Dagur B Eggertsson tekur við trénu og segir nokkur orð og kynnir norsk-íslenskt barn sem tendrar ljósin á trénu.
 
16:25 Benedikt Gylfason sigurvegari í stóru upplestrarkeppni grunnskólanna flytur kvæði um jólasveininn Skyrgám.

 
16:30 Stefán Hilmarsson og Ragnheiður Gröndal syngja nokkur jólalög og jólasveinar mæta á svæðið.
 
17:00 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög við jólatréð.

 
17:15 Formlegri dagskrá lokið.