Hamraskóla er fyrsti grunnskólinn í borginni sem hefur náð öllum skrefum í umhverfiskerfi borgarinnar.
Í síðustu viku tók skólastjóri Hamraskóla á móti viðurkenningu fyrir þriðja og fjórða græna skrefið fyrir hönd allra starfsmanna skólans. Hamraskóla er fyrsti grunnskólinn í borginni sem hefur náð þessum áfanga og getur státað af því að huga að umhverfisvernd á öllum sviðum í starfsemi skólans.
Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, Helgi Grímsson sviðsstjóri og Helena W. Ólafsdóttir verkefnastjóri sjálfbærni afhentu skólanum viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í skólanum.
Í Hamraskólahefur verið unnið að umhverfismálum um nokkurra ára skeið. Skólinn hefur sett sér umhverfisstefnu, hvatt til almenningssamgangna, flokkað ítarlega og keypt inn umhverfismerktar vörur. Starfsfólk skólans er stolt af árangri skólans og ætlar sér að halda áfram af sama krafti.
Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar er umhverfisstjórnunarkerfi sem allir vinnustaðir borgarinnar eru hvattir til að taka þátt í. Verkefnið snýst um að efla vistvænan rekstur í borginni í anda sjálfbærrar þróunar. Kerfið byggir á því að ná tilteknum árangri í níu þáttum rekstursins og er kerfið innleitt í fjórum skrefum. Yfir 100 stofnanir og starfsstaðir Reykjavíkurborgar eru skráð í verkefnið en auk Hamraskóla hafa aðeins fjórir lokið fjórða og síðasta skrefinu; Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, leikskólinn Grænaborg og þjónustumiðstöðvarnar Miðgarður og Vesturgarður.
Meira um grænu skrefin.