Grunnskólar birta næringarútreiknaða matseðla

Skóli og frístund

""

Stöðugt fleiri grunnskólar í borginni geta birt næringarútreiknaða matseðla á heimasíðum sínum. Verið er að innleiða nýjan þjónustustaðal fyrir skólamötuneytin í þremur skólahverfum

Markmiðið er að ljúka innleiðingu á nýjum þjónustustaðli í öllum sex skólahverfum borgarinnar fyrir árslok, en innleiðing er hafin í 21 grunnskóla af 36. 

Reykjavíkurborg hefur sett sér viðmið um næringargildi og samsetningu máltíða og matseðla sem byggja á ráðleggingum frá embætti  landlæknis. Þar er miðað við að máltíðir sem boðið er upp á séu að lágmarki 500 hitaeiningar.

Mötuneytisþjónusta skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar tók til starfa um mitt ár 2013 og vinnur að því að samræma og tryggja gæði í mötuneytisþjónustu fyrir börn og ungmenni. Sérfræðingar sviðsins vinna í samstarfi við yfirmenn skólamötuneyta og birgja til að samræma matseðla í hverfum og tryggja sem hagstæðust innkaup á hráefni með örútboðum á hverfavísu.

Þá er unnið að því að betrumbæta vinnuaðstöðu og tækjabúnað mötuneytanna.

Meðal þeirra grunnskóla sem birta næringarútreiknaða matseðla eru Fossvogsskóli, Langholtsskóli, Húsaskóli, Réttarholtsskóli og Vogaskóli.

Mötuneyti skóla- og frístundasviðs framleiða um 8 milljónir matarskammta á hverju skólaári á um 140 starfsstöðvum. Þau veita um 18.000 börnum á aldrinum 1 -16 ára matarþjónustu.

Sjá einnig frétt um samstarf við embætti landlæknis og Landvernd um lýðheilsu barna.