Til að skapa rými fyrir mikinn mannfjölda í miðborginni á meðan Iceland Airwaves tónlistarhátíðin stendur yfir dagana 4.-8. nóvember næstkomandi verður hluta af tveimur götum breytt tímabundið í göngugötur. Um er að ræða annars vegar Laugaveg frá Vatnsstíg niður að gatnamótum Bankastrætis og Þingholtstrætis og hins vegar Skólavörðustíg frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Bankastræti.
Svæðið verður því eingöngu fyrir gangandi í fimm daga, frá miðvikudegi 4. nóvember til sunnudagskvölds 8. nóvember. Akstur vegna vöruflutninga er heimilaður milli kl. 7.00 – 11.00 á miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
Mikil aðsókn kallar á aukið rými
Hátíðin setur mikinn svip á borgina og henni fylgir fjölbreytt mannlíf. Búist er við um sex þúsund erlendum gestum og verða í allt níu þúsund miðar seldir á hátíðina í ár. Auk hátíðarinnar sjálfrar verða mikið af svokölluðum „off- venue“ eða hliðarviðburðum, sem ekki þarf miða á, og eru þeir flestir miðsvæðis í borginni. Meðal staða sem hýsa slíka viðburði eru Dillon á Laugavegi 30, Around Iceland á Laugavegi 18b, Loft Hostel Í Bankastræti 7 og 12 Tónar á Skólavörðustíg. Gestir sem sækja miðborgina heim verða því umtalsvert fleiri en fjöldi seldra miða segir til um og veitir því ekki af auknu rými fyrir gangandi vegfarendur.