Fyrsta skóflustunga að nýjum íbúðakjarna

Velferð Skipulagsmál

""

Borgarstjóri tók í dag, föstudaginn 17. júlí, fyrstu skóflustunguna að nýjum íbúðakjarna við Þorláksgeisla 2 - 4 í Grafarholti ásamt þremur blómarósum, þeim Þóru, Erlu og Perlu.

Að Þorláksgeisla á að byggja nýjan íbúðakjarna fyrir einhverfa einstaklinga.  Þarna verða fimm einstaklingar í einstaklingsíbúðum auk íbúðar fyrir starfsfólk. Stærð hússins verður 430m2, sjá teikningu. Það eru ASK arkitektar sem teiknuðu húsið en verktakafyrirtækið Spöng mun byggja það fyrir Félagsbústaði hf.

Áætlað er að húsið verði tilbúið í lok september 2016 og það mun verða velferðarsvið Reykjavíkur sem sér um daglegan rekstur hússins. Í húsinu verður vakt allan sólarhringinn.

Aðilum verður búið heimili samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum 2013 - 2023. Meginmarkmið stefnunnar er að fatlað fólk fái þjónustu á heimili sínu í samræmi við þarfir sínar og óskir. Þjónustan skal vera einstaklingsmiðuð, heildstæð og sveigjanleg.  Auk þess að styðja við sjálfstætt og innihaldsríkt líf fatlaðs fólks á heimili sínu og í tómstundum. 

Þetta er einn íbúðakjarni af mörgum sem borgin hyggst opna til að auka búsetuúrræði fatlaðs fólks. Reykjavíkurborg vill geta svarað eftirspurn eftir húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk að fullu.