Rannsókn sem gerð var á upplifun foreldra fatlaðra barna leiðir í ljós að þeir eru í misgóðum tengslum við ráðgjafa á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar og hefur það mikil áhrif á upplifun þeirra af þjónustunni.
Tvær umfangsmiklar kannanir Félagsvísindastofnunar HÍ frá 2011 og 2014 um þjónustu við fatlað fólk leiddi í ljós að óánægja þessara foreldra væri meiri eftir að þjónustan fluttist frá ríki til sveitarfélaga.
Sumarið 2015 réð velferðarsvið Reykjavíkurborgar meistaranema við HÍ til þess að rannsaka enn frekar upplifun foreldra á þjónustunni sem veitt er fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra. Tekin voru viðtöl við átta foreldra sem þáðu þjónustu fyrir börn með flóknar fatlanir.
Spurt var sérstaklega um yfirfærslu málaflokksins frá ríki til borgar og höfðu viðmælendur og börn þeirra, sem höfðu verið í þjónustu áður en málaflokkurinn fluttist yfir, ekki fundið fyrir neinum breytingum á þjónustu við flutningana.
Viðtölin leiddu í ljós að foreldrarnir vilja vera í betri tengslum við þjónustumiðstöðvar og óska eftir því að ráðgjafar setji sig í samband við þá af fyrra bragði með úrræði sem í boði eru. Foreldrar sögðust oftar fá ráðgjöf frá öðrum foreldrum fatlaðra barna og þá sérstaklega þeir foreldrar sem lítil tengsl höfðu við þjónustumiðstöð.
Foreldrar vildu betra aðgengi að upplýsingum og meiri vitund um réttindi og frumkvæði frá sveitarfélaginu. Þeir vilja að litið sé á aðstæður hvers og eins þegar teknar eru ákvarðanir um úrræði. Fötluð börn hafi ólíkar skerðingar og þau búi við ólíkar aðstæður sem taka þurfi mið af því.
Segja má að niðurstöður rannsóknarinnar séu að miklu leyti sambærilegar við rannsóknir fyrri ára. Hins vegar telja foreldrar fatlaðra barna í Reykjavík þjónustu standa jafnfætis þjónustu annarra sveitarfélaga.
Þrátt fyrir að foreldrar upplifi tregðu í kerfinu er snýr að upplýsingagjöf og frumkvæði eru foreldrar frekar ánægðir með þjónustuna þegar hún er komin á og vildu þeir hvergi annars staðar vera en í Reykjavík. Óánægja með þjónustuna virðist því að mestu snúa að ferlinu áður en úrræði eða þjónusta eru komin í fastar skorður.
Rannsókn sem þessi er vísir af því hvernig megi bæta þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík. Unnið verður með niðurstöðurnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar og verklagi breytt í þjónustu við foreldra fatlaðra barna.