Fjölskyldudagur í Gerðubergi

Velferð Mannlíf

""

Laugardaginn 14. mars kl. 13:00-16:00 verður haldinn skemmtilegur fjölskyldudagur í Breiðholti í Menningarhúsinu Gerðubergi. Meðal þess sem verður í boði eru fjölbreytt skemmtiatriði úr hverfinu; skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leikur lög, Gerðubergskórinn syngur og ungmenni sem unnu Breiðholt got talent sýna listir sínar. Flóamarkaður með notað og nýtt verður staðsettur á jarðhæðinni og hægt verður að kíkja í spjall til náms- og starfsráðgjafa og fjölskylduráðgjafa. Heilsugæslan í Efra-Breiðholti býður upp á blóðþrýstingsmælingar, módelsýning verður í smíðastofu, hægt að kíkja í föndur í Borgarbókasafninu og í Lágholti verður opin íslenskukennsla kl 13:30-15:00. Allir íbúar í Breiðholti og heiminum öllum eru hjartanlega velkomnir á fjölskyldudaginn!

Fjölskyldudagurinn er haldinn í tengslum við uppbyggingu á fjölskyldumiðstöð í Breiðholti. Fyrirhugað er að opna slíka miðstöð í rými félagsstarfsins í Gerðubergi, en starfsemi hennar verður síðan þróuð áfram í takt við þarfir fjölskyldna og íbúa í Breiðholti.