Það var fjör í félagsmiðstöðvum borgarinnar 4. nóvember þegar haldið var upp á Félagsmiðstöðvadaginn.
Foreldrar og börn skemmtu sér vel saman, spiluðu, fóru í spurningarkeppni, fluttu tónlist og gæddu sér á góðum kökum.dagsins er að vekja athygli á því starfi sem fer fram í félagsmiðstöðvunum og bjóða allri fjölskyldunni, foreldrum, systkinum, ömmum og öfum, frændum og frænkum að kynnast starfinu. Yfirskrift dagsins var að þessu sinni ÞETTA MÁ! Í FÉLAGSMIÐSTÖÐINNI.
Félagsmiðstöðvadagurinn er haldinn á öllu landinu fyrir tilstilli SAMFÉS, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Dagurinn á þó rætur sínar að rekja til Reykjavíkur og hefur verið haldinn hátíðlegur þar frá 2005.