Féll fyrir aprílgabbi um ókeypis list

Mannlíf Menning og listir

""

Listasafn Reykjavíkur og Mennningarkortið áttu aprílgabb Reykjavíkurborgar að þessu sinni með tilkynningu um að Listasafnið hygðist gefa hluta af safnkostinum vegna plássleysis. Einn hljóp 1. apríl og var hann leystur út með splunkunýju Menningarkorti og glæsilegu veggspjaldi.

Lorenzo Imola frá Rimini á Ítalíu var sá eini sem féll fyrir tilkynningu þess efnis að Listasafn Reykjavíkur væri að gefa hluta af safnkostinum vegna plássleysis. Lorenzo mætti galvaskur í Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús til að velja sér listaverk en uppákoman var að sjálfsögðu aprílgabb skipulagt af Menningarkorti Reykjavíkur og Listasafni Reykjavíkur. Lorenzo, sem nemur listfræði við Háskóla Íslands, tók vel í uppátækið og fór ekki tómhentur heim því hann var leystur út með splunkunýju Menningarkorti og glæsilegu veggspjaldi.