Endurskoðun mannréttindastefnu - ábendingar vel þegnar

Mannréttindi

""

Unnið er að endurskoðun mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar en stefnan var fyrst samþykkt 2006 og var endurskoðuð 2013. Vinnan er í höndum stýrihóps sem mun leggja drögin fram til staðfestingar borgarráðs. Í samræmi við auknar áherslur á samráð og íbúalýðræði hjá Reykjavíkurborg eru drög að stefnunni birt á vef borgarinnar og er fólk hvatt til að kynna sér þau og senda inn ábendingar og athugasemdir. Stýrihópurinn tekur við ábendingunum og nýtir við vinnu sína.

Drög að mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Stýrihópinn skipa:

Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps. Stjórnmálaflokkur: Vinstri græn. Netfang: lif.magneudottir@reykjavik.is

Magnús Sigurbjörnsson. Stjórnmálaflokkur: Sjálfstæðisflokkur. Netfang: magnus@xd.is

Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir. Stjórnmálaflokkur: Framsókn og flugvallavinir. Netfang: sveinbjorg.b.sveinbjornsdottir@reykjavik.is

Sabine Leskopf, Stjórnmálaflokkur: Samfylking. Netfang: sabine.leskopf@reykjavik.is

Kjartan Jónsson, Stjórnmálaflokkur:  Píratar. Netfang: kjartanice@gmail.com

Ragnar Hansson, Stjórnmálaflokkur:  Björt framtíð. Netfang: ragnar@hansson.is

Starfsmaður hópsins er Halldóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Netfang: halldora.gunnarsdottir@reykjavik.is

Vinsamlegast sendið ábendingar fyrir 31. ágúst n.k. á netfang Lífar eða Halldóru.