Haldið verður upp á samnorrænan Dag villtra blóma sunnudaginn 14. júní. Í Reykjavík verður boðið upp á tvær leiðsagðar gönguferðir um náttúruna í borgarlandinu, í Elliðaárdal og um Fossvog.
Fyrri gangan verður farin um Elliðaárdal kl. 11. Mæting við hesthús Fáks við Sprengisand og gengið þaðan. Um leiðsögn sér Hjörtur Þorbjörnsson, grasafræðingur og forstöðumaður Grasagarðs Reykjavíkur.
Seinni gangan verður farin um Fossvog kl. 14. Mæting við Ylströndina í Nauthólsvík. Um leiðsögn sér Snorri Sigurðsson, líffræðingur og verkefnastjóri Reykjavíkur iðandi af lífi.
Athugið að Flóruvinir standa fyrir fleiri plöntuskoðunarferðum víða um land þennan dag.
Gestir eru hvattir til að taka með sér flóruhandbækur og stækkunargler. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Sjá nánar, www.floraislands.is/Annad/blomdag.html.