Crispy Food Organic Basic Muesli innkallað

Innkallanir matvæla

""
Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Crispy Food Organic Basic Muesli í 375 g pokum vegna þess að snefilmagn af jarðhnetum hefur greinst í ákveðnum framleiðslulotum af vörunni en varan er ekki merkt með slíkt innihald. 
 
 
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
 
Vörumerki:  Crispy Food.

Vöruheiti:  Organic Basic Muesli.

Strikanúmer:  5701164700687.

Nettómagn:   375 g.

Best fyrir:  17.06.2016, 13.08.2016 og 01.10.2016.

Lotunúmer:  1034185, 1034956 og 1035738.

Innflytjandi:  Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Bónus, Hagkaupa og Gló.
 
Jarðhnetur eru ofnæmis- eða óþolsvaldur og því er neysla vörunnar varasöm fyrir einstaklinga með ofnæmi eða óþol fyrir jarðhnetum.
Neytendur sem keypt hafa Crispy Food Organic Basic Muesli í verslunum Bónus, Hagkaupa eða Gló og umbúðirnar eru merktar með ofangreindum best fyrir dagsetningum / lotunúmerum og hafa ofnæmi eða óþol fyrir jarðhnetum er bent á að neyta hennar ekki eða farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga, í síma 530 5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.