Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á Crispy Food Organic Basic Muesli í 375 g pokum vegna þess að snefilmagn af jarðhnetum hefur greinst í ákveðnum framleiðslulotum af vörunni en varan er ekki merkt með slíkt innihald.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Crispy Food.
Vöruheiti: Organic Basic Muesli.
Strikanúmer: 5701164700687.
Nettómagn: 375 g.
Best fyrir: 17.06.2016, 13.08.2016 og 01.10.2016.
Lotunúmer: 1034185, 1034956 og 1035738.
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Bónus, Hagkaupa og Gló.
Vöruheiti: Organic Basic Muesli.
Strikanúmer: 5701164700687.
Nettómagn: 375 g.
Best fyrir: 17.06.2016, 13.08.2016 og 01.10.2016.
Lotunúmer: 1034185, 1034956 og 1035738.
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Bónus, Hagkaupa og Gló.
Jarðhnetur eru ofnæmis- eða óþolsvaldur og því er neysla vörunnar varasöm fyrir einstaklinga með ofnæmi eða óþol fyrir jarðhnetum.
Neytendur sem keypt hafa Crispy Food Organic Basic Muesli í verslunum Bónus, Hagkaupa eða Gló og umbúðirnar eru merktar með ofangreindum best fyrir dagsetningum / lotunúmerum og hafa ofnæmi eða óþol fyrir jarðhnetum er bent á að neyta hennar ekki eða farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga, í síma 530 5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is.