Byggingarréttur á Lambhagavegi 19 boðinn út

Stjórnsýsla Umhverfi

""

Reykjavíkurborg leitar tilboða í byggingarrétt á Lambhagavegi 19, en á lóðinni má byggja íbúð, gróðurhús og þjónustubyggingar. Frestur til að skila tilboðum er til 9. júní.

Byggingarheimild fyrir Lambhagaveg 19 er alls 2.474 fermetrar og nær hún til íbúðarhúss, gróðurhúss og þjónustubygginga (skemmur, áhaldahús og pökkunarhús). Íbúðarhúsnæði má ekki fara yfir 500 fermetra og þjónustubyggingar ekki yfir 592 fermetra. Á þeim fermetrum sem eftir standa eða á 1.382 fermetrum er heimilt að byggja gróðurhús ef aðrar byggingarheimildir eru fullnýttar.

Tilboð í byggingarrétt skulu berast fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. júní. Þeim skal skila í þjónustuver Reykjavíkurborgar Borgartúni 12 - 14 í lokuðu umslagi merkt „Lambhagavegur 19“. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14.15 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Nánari upplýsingar eru á lóðvef Reykjavíkurborgar – skoða upplýsingasíðu.