Breyttur opnunartími á listsýningunni Kynleikum

Mannlíf Menning og listir

""

Vakin er athygli á breyttum opnunartíma á listsýningunni Kynleikum, sem er hluti af Afrekasýningu kvenna á Íslandi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hún verður framvegis opin frá 13.00-19.00.

Í sýningunni kanna listamennirnir mörk líkamans og sjálfið í samfélagi sem mótar stöðugt kynin með einum eða öðrum hætti. Listinni er ætlað að kalla fram margskonar tilfinningar og greinilegt að listamönnum Kynleika hefur tekist það með ágætum. Verkin hafa vakið verðskuldaða athygli, en þau eru krefjandi og upplifun fólks hefur ekki bara verið jákvæð eða góð. 

Sýningin er haldin í mötuneyti starfsfólks borgarinnar sem hefur sætt talsverðri gagnrýni og athugasemdir hafa borist um að einstaka verk geti talist til kynferðislegrar áreitni á vinnustað. Því hefur verið ákveðið að sýningin verði ekki opnuð fyrr en að matmálstíma loknum.

Eftir sem áður er fólk hvatt til að heimsækja sýninguna sem vekur upp áleitnar spurningar og vangaveltur um samfélagið og hlutverk kynjanna í því. Sýningarstjórar munu bjóða upp á leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 20. september kl. 14 og sunnudaginn 27. september kl. 14.