Breiðholtsbylgjan haldin í þriðja sinn í dag

Velferð Skóli og frístund

""

Í dag verður Breiðholtsbylgjan haldin í þriðja sinn, en hún er starfsdagur sem öllum starfsmönnum borgar, ríkis og félagasamtaka auk foreldrafélaga og dagforeldra í Breiðholti er boðin þátttaka í. Rúmlega 600 manns hafa skráð sig til þátttöku. Verkefni um Heilsueflandi Breiðholt verður áberandi á deginum, en m.a. er stefnt að því að kynna nýtt auðkenni fyrir verkefnið. Fjölmargar skemmtilegar og fjölbreyttar smiðjur setja sterkan svip á daginn, en í þeim miðla starfsmenn í hverfinu auk fleiri aðila þekkingu sinni og reynslu til annarra starfsmanna sem þjónusta íbúa í hverfinu á einn eða annan hátt. Óhætt er að fullyrða að Breiðholtsbylgjan sé einn fjölmennasti og víðfeðmasti starfsdagur sem haldinn er á landinu öllu.

Dagskráin hefst í íþróttahúsinu við Austurberg kl. 12:20 með hátíðlegri setningarathöfn þar sem borgarstjóri ávarpar alla þátttakendur og Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar flytur fyrirlestur. Sííðan verður smiðjuvinna frameftir degi. Góð stemmning er fyrir deginum sem mun án efa þjappa saman starfsfólki, þétta raðir þess og efla þekkingu enn frekar. Yfirskrift Breiðholtsbylgjunnar í ár er "Heilsa, læsi og vellíðan".