Í dag verður Breiðholtsbylgjan haldin í þriðja sinn, en hún er starfsdagur sem öllum starfsmönnum borgar, ríkis og félagasamtaka auk foreldrafélaga og dagforeldra í Breiðholti er boðin þátttaka í. Rúmlega 600 manns hafa skráð sig til þátttöku. Verkefni um Heilsueflandi Breiðholt verður áberandi á deginum, en m.a. er stefnt að því að kynna nýtt auðkenni fyrir verkefnið. Fjölmargar skemmtilegar og fjölbreyttar smiðjur setja sterkan svip á daginn, en í þeim miðla starfsmenn í hverfinu auk fleiri aðila þekkingu sinni og reynslu til annarra starfsmanna sem þjónusta íbúa í hverfinu á einn eða annan hátt. Óhætt er að fullyrða að Breiðholtsbylgjan sé einn fjölmennasti og víðfeðmasti starfsdagur sem haldinn er á landinu öllu.