Borgarstjórn Reykjavíkur mun funda í Breiðholti í dag, þriðjudaginn 21. apríl. Er þetta fyrsti reglulegi fundur borgarstjórnar í Reykjavík sem haldinn er utan fundarsals borgarstjórnar. Fundir borgarstjórnar eru opnir almenningi.
Fundur borgarstjórnar Reykjavíkur verður haldinn í Borgarbókasafni – menningarhúsi Gerðubergi í dag. Fundurinn hefst kl. 14 og stendur fram eftir kvöldi.
Fundir borgarstjórnar fara reglulega fram í borgarstjórnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur en þar sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun hafa aðsetur í Breiðholti næstu tvær vikurnar var ákveðið að færa fundinn upp í Breiðholt.
Frá stofnun bæjarstjórnar árið 1836 hafa fundir bæjar- og borgarstjórnar verið haldnir á sex stöðum, þ.e. í Landsyfirréttarhúsinu Austurstræti 22, í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg, í Góðtemplarahúsinu við Vonarstræti, í Eimskipafélagshúsinu við Pósthússtræti, Skúlatúni 2 og Ráðhúsi Reykjavíkur. Tveir sameiginlegir fundir borgarstjórnar með bæjarstjórn Akureyrar hafa einnig verið haldnir á Akureyri.
Á dagskrá fundarins í dag er m.a. umræða um skýrslu starfshóps um móðurmálskennslu barna með annað móðurmál en íslensku. Jafnframt tillaga um stofnun starfshóps um aukinn hlut karlkynskennara í grunnskólum borgarinnar, tillaga um samráð við foreldra við ráðningar skólastjórnenda, umræða um Reykjavíkurhúsin og fleira.
Forseti borgarstjórnar er Sóley Tómasdóttir.