Borgarstjóri fer vítt og breitt um Laugardal

Skóli og frístund Mannlíf

""
Borgarstjóri hefur heimsótt grunnskóla, leikskóla og fleiri stofnanir í Laugardalnum síðustu daga. 
Í gær fór Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í heimsókn í Menntaskólann við Sund og átti fund með nemendafélagi skólans og ræddi við Má Vilhjálmsson rektor. Að loknum fundi var farið í skoðunarferð um nýbyggingu skólans sem verið er að reisa. 
 
Í morgun hófst svo dagurinn með morgunsöng í Laugarnesskóla þar sem nemendur sungu fyrir borgarstjóra Dagasönginn og hið fallega lag Heimkomu. Að því loknu ræddi borgarstjóri við Sigríði Heiðu Bragadóttur skólastjóra um skólastarfið. Því næst var haldið í leikskólann Laugasól þar sem borgarstjóri átti fund með leikskólastjórum í Laugardal. Að loknum fundi var farið í skoðunarferð um leikskólann og heilsað upp á börnin sem tóku lagið fyrir borgarstjóra.
 
Dagur fór síðan í heimsókn á dvalarheimili aldraðra á Hrafnistu þar sem hann heilsaði upp á heimilisfólk sem var í matslanum. Því næst sat hann hádegisverðarfund með stjórn Sjómannadagsráðs auk Ilmar Kristjánsdóttur, formanns velferðarráðs, og Stefáns Eiríkssonar, sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.