Betri aðstaða á tjaldsvæðinu í Laugardal

Umhverfi Framkvæmdir

""

Nýtt þjónustuhús með snyrtiaðstöðu, ný eldunaraðstaða ásamt skála sem rúmar um 70 gesti, sem og ný afgreiðsla er meðal þess sem gert hefur verið á tjaldsvæðinu í Laugardal á liðnum árum. Í gær var boðið til veislu til að fagna þessum verklokum og 15 ára farsælu samstarfi Reykjavíkurborgar og Farfugla um rekstur tjaldsvæðisins.

Tímabært var að ráðist yrði í endurbætur en hluti af aðstöðunni er frá því tjaldsvæðið var opnað árið 1986 og það ár voru um 12.000 gistinætur á svæðinu.  Á síðasta ári voru gistinæturnar hins vegar orðnar 42.700 talsins og á þessu ári er gert ráð fyrir að þær verði um 46.000. Markús Einarsson framkvæmdastjóri Farfugla segir að af þessu megi sjá að eldri aðstaðan hafi verið löngu sprungin auk þess sem hún uppfyllti ekki breyttar þarfir tjaldferðalanga.

Fyrsta tjaldsvæðið með Earth Check umhverfisviðurkenningu

Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri tjaldsvæðisins segir að allt frá því að Farfuglar undirrituðu samning við Reykjavíkurborg um rekstur þess fyrir 15 árum hafi mjög mikil áhersla verið lögð á umhverfismál. Svæðið er fyrsta tjaldsvæðið á Íslandi sem fengið hefur umhverfisviðurkenningu EarthCheck.  „Með öflugu umhverfisstarfi viljum við koma á móts við óskir og væntingar gesta tjaldsvæðisins sem leitt geta til ávinnings fyrir umhverfið, öryggi, heilsu og efnahag. Við hvetjum gesti með ýmsum hætti til að taka virkan þátt í því umhverfisstarfi sem fram fer á svæðinu“, segir Sigríður. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að auka flokkun, draga úr sóun, hvetja til vistvænna ferðamáta og miðla upplýsingum um umhverfis- og öryggismál sem ætlað er að styrkja ábyrga hegðun gesta á ferð þeirra um landið.