Bergljót mun stjórna í Jörfa

Skóli og frístund

""

Bergljót Jóhannsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri í Jörfa. 

Bergljót  lauk leikskólakennaraprófi frá Fóstruskóla Íslands 1988 og er með diplómu í uppeldis- og menntunarfræði frá Kennaraháskóla Íslands.

Hún hefur víðtæka stjórnunarreynslu og hefur starfað sem leikskólakennari, aðstoðarleikskólastjóri og leikskólastjóri, lengst af í Sjónarhóli.



Tveir sóttu um leikskólastjórastöðuna, en umsóknarfrestur rann út 5. Júlí.



Bergljót er boðin velkomin til starfa í Jörfa.