Leikskólinn Bakkaberg fékk á dögunum Grænfánann í þriðja sinn.
Mikið var um dýrðir í Bakkabergi þegar leikskólabörnin og starfsfólkið fékk þessa alþjóðlegu viðurkenningu í þriðja sinn. Að þessu sinni var horfið frá að því að draga fánann að húni því fánarnir eru fljótir að trosna í vindasömu umhverfi leikskólans sem er með starfsstöðvar á Kjalarnesi og í Bakkahverfinu. Þess í stað var settur upp Grænfánaskjöldur á vegg á báðum starfsstöðvum leikskólans þar sem hann blasir við öllum þeim sem koma þar að.
Katrín Magnúsdóttir frá Landvernd afhenti skjöldinn og heiðursgestur var Sigríður Pétursdóttir formaður Hverfisráðs Kjalarness. Grænfáninn er viðurkenning fyrir góða frammistöðu í umhverfismenntun til sjálfbærrar þróunar. Einnig vitnar hann um að börn og starfsfólk leggja sitt að mörkum til að bæta umhverfið innan skólans og í nærumhverfinu.
Sem fyrr vinnur leikskólinn Bakkaberg með eftirfarandi markmið sem falla vel að starfi leikskólabarnanna;
• Að fræða börn, foreldra og starfsfólk um Grænfánann og tilgang þess að fá að flagga honum.
• Að flokka ruslið og endurnýta sem mest.
• Að vera hagnýt varðandi allan rekstur skólans, t.d. hvað varðar orkunotkun, nýtingu á efniviði og að gera hagstæðari innkaup.
• Að kynna fyrir öðrum hvað skólinn gerir í umhverfismálum.
• Að skerpa á því að skilja bíla ekki eftir í lausagangi.
• Að börnin upplifi náttúruna og læri að umgangast hana af virðingu.
• Að börnin kynnist fuglavernd.