Aukið samráð sveitastjórna við ungt fólk

Velferð Skóli og frístund

""

Sameiginlegur fundur borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórnar Akureyrar var haldinn á Akureyri í gær. Fundurinn fór fram í Menningarhúsinu Hofi og var þetta í þriðja sinn sem hann er haldinn. 

Markmið fundarins er að ræða sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna tveggja og efla kynni borgarfulltrúa Reykjavíkur og bæjarfulltrúa Akureyrar. Sóley Tómasdóttir forseti borgarstjórnar og Matthías Rögnvaldsson forseti bæjarstjórnar stýrðu fundinum sem var opinn áhorfendum.

Á fundinum var samþykkt að hefja undirbúning að hugmyndaþingi með kjörnum fulltrúum og nemendum á unglingastigi í báðum sveitarfélögum þar sem leitað verður eftir upplýsingum um það sem helst hvílir á unglingum þegar kemur að lýðræðis- og umhverfismálum. Þingin verði haldin í október og sameiginleg að hluta með aðstoð fjarfundarbúnaðar.

Sóley Tómasdóttir segir umræðurnar á fundinum hafa gefið til kynna að skoðanir ungs fólks á öllum viðfangsefnum sveitastjórna skipti ungt fólk máli. Hún segist vonast til að hugmyndaþingið í haust verði upphafið að auknu samráði sveitastjórna við ungt fólk.