Almenn ánægja með heimahjúkrun

Velferð

""
Samkvæmt könnun meðal notenda heimahjúkrunar í Reykjavík voru yfir 80% ánægðir með þjónustuna.
Helstu niðurstöður könnunarinnar, sem gerð var af starfsmönnum deildar gæða og rannsókna á skrifstofu velferðarsviðs í apríl, voru átta af hverjum tíu ánægðir með þjónustuna. Langflestir, eða 75% aðspurðra, töldu að þjónustan gerði þeim kleift að búa lengur heima. Eitt aðalmarkmið heimaþjónustu borgarinnar er að styðja fólk áfram í sjálfstæðri búsetu.
 
Tæplega 85% töldu sig vera að fá þá heimhjúkrun sem þeir þörfnuðust og litlu færri, eða tæp 80%, voru sáttir við á hvaða tíma dags þjónustan var veitt.
 
Heimahjúkrun er fjölbreytt þjónusta, en flestir fá aðstoð við böðun og lyfjagjöf. Þriðjungur þeirra sem svöruðu bjuggu með maka en aðrir einir og í báðum hópum bjó fólk oftast í eigin húsnæði
 
Könnunin var gerð með því að senda spurningalista til 366 einstaklinga sem fengu heimahjúkrun.  Svörun var tæplega 40%. Konur voru í miklum meirihluta þeirra sem svöruðu en flestir voru á aldrinum 81-95 ára eða 64,2%. Elsti einstaklingurinn var 98 ára og sá yngsti 38 ára.
 
Sambærilegar kannanir voru gerðar árið 2009 og 2011.  Niðurstöðum er ætlað að vera leiðarljós í þróun þjónustunnar.
 

Sjá könnun í heild sinni