Allskonur! í Ráðhúsi Reykjavíkur á Menningarnótt

Mannlíf Menning og listir

""

Menningarnótt verður haldin hátíðleg í 20. sinn þann 22. ágúst næstkomandi. Glæsileg dagskrá verður í boði þar sem kennir ýmissa grasa. Í Ráðhúsinu verður boðið upp á dagskrána Allskonur! í Tjarnarsal Ráðhússins. Daskráin er liður í hátíðahöldum vegna aldarafmælis kosningaréttar kvenna. Dagskráin hefst klukkan 14 og verða allskonar atriði í boði.

Allskonur! í Ráðhúsi Reykjavíkur, dagskrá:

14.00 Aktívistarnir í Konurtala // Þöggun afhenda Reykjavíkurborg fána og setja á svið gjörning

14.15 Angela Rawlings flytur ljóð

14.30 Uppistand með Snjólaugu Lúðvíksdóttur

14.45 Hljómsveitin Eva stígur á stokk og er táknmálstúlkuð af Hröðum höndum

15.00 Uppistand með Bylgju Babýlons

15.15 Adda spilar tónlist

15.30 Eydís Blöndal les úr væntanlegri ljóðabók, Tíst og bast

15.45 Steinunn Rögnvalds og Silja Bára Ómarsdóttir lesa úr væntanlegri bók um fóstureyðingar

16.15 Eva Rún Snorradóttir flytur ljóð

16.30 Valgerður Þóroddsdóttir flytur ljóð úr væntanlegri ljóðabók

16.45 Þrjú örvídjó frá #freethenipple

16.55 Hljómsveitin Eva og Hraðar hendur ljúka dagskránni

Á milli atriða spilar hljómsveitin Ylja. Myndlist er í höndum Siggu Daggar, Öldu Villiljóss og Öldu Lilju. Kynnir er Eydís Blöndal.

Ekki missa af frábærri dagskrá!

Gott aðgengi, ókeypis inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.