Menningarnótt verður haldin hátíðleg í 20. sinn þann 22. ágúst næstkomandi. Glæsileg dagskrá verður í boði þar sem kennir ýmissa grasa. Í Ráðhúsinu verður boðið upp á dagskrána Allskonur! í Tjarnarsal Ráðhússins. Daskráin er liður í hátíðahöldum vegna aldarafmælis kosningaréttar kvenna. Dagskráin hefst klukkan 14 og verða allskonar atriði í boði.
Allskonur! í Ráðhúsi Reykjavíkur, dagskrá:
14.00 Aktívistarnir í Konurtala // Þöggun afhenda Reykjavíkurborg fána og setja á svið gjörning
14.15 Angela Rawlings flytur ljóð
14.30 Uppistand með Snjólaugu Lúðvíksdóttur
14.45 Hljómsveitin Eva stígur á stokk og er táknmálstúlkuð af Hröðum höndum
15.00 Uppistand með Bylgju Babýlons
15.15 Adda spilar tónlist
15.30 Eydís Blöndal les úr væntanlegri ljóðabók, Tíst og bast
15.45 Steinunn Rögnvalds og Silja Bára Ómarsdóttir lesa úr væntanlegri bók um fóstureyðingar
16.15 Eva Rún Snorradóttir flytur ljóð
16.30 Valgerður Þóroddsdóttir flytur ljóð úr væntanlegri ljóðabók
16.45 Þrjú örvídjó frá #freethenipple
16.55 Hljómsveitin Eva og Hraðar hendur ljúka dagskránni
Á milli atriða spilar hljómsveitin Ylja. Myndlist er í höndum Siggu Daggar, Öldu Villiljóss og Öldu Lilju. Kynnir er Eydís Blöndal.
Ekki missa af frábærri dagskrá!
Gott aðgengi, ókeypis inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.