Samkvæmt árlegri lesskimun meðal nemenda í 2. bekk reykvískra grunnskóla vorið 2015 reyndust 939 nemendur af 1.459, eða rúmlega 64%, geta lesið sér til gagns samkvæmt viðmiði skimunarinnar.
Nemendur sem ekki náðu viðmiðinu eru 520 eða tæp 36%, en einungis hluti þeirra fékk svo lága niðurstöðu að sérstaks stuðnings er þörf í lestri, t.d. með einstaklingsáætlun eða einstaklingsnámskrá.
Tilgangur lesskimunar er að fá heildarmynd af lestrargetu nemenda í Reykjavík við lok 2.
bekkjar, skapa möguleika á samanburði milli ára og gera kennurum og skólum kleift að setja sér markmið um framfarir nemenda með samanburði við stærri heild.
Tækið sem notað er til að meta lestrarfærni nemenda heitir Læsi, lestrarskimun í 1. og 2.
bekk. Það mælir hve stór hluti nemenda getur lokið 65% verkefnanna en það viðmið var sett í samráði við höfunda skimunarinnar.
Að þessu sinni tóku allir almennir grunnskólar í Reykjavík með 2. bekk þátt í lesskimuninni auk þriggja sjálfstætt starfandi skóla eða alls 34 grunnskólar.
Á myndinni má sjá hlutfall nemenda sem nær því viðmiði að geta lesið sér til gagns vorið 2015, samanborið við árin 2002 - 2014.
Í stefnu og starfsáætlun skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar 2015 eru málþroski, læsi og lesskilningur í leik- og grunnskólum einn af fimm umbótaþáttum sviðsins. Læsi er einn af grunnþáttum menntunar í sameiginlegri aðalnámskrá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla frá 2011.
Sjá lesskimunina.